Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2026

Kanadíska ljóðskáldið Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2026.
Anne Carson er menntuð í klassískum fræðum og kenndi um árabil forngrísku, forngrískar bókmenntir og fræði auk skapandi skrifa í virtum háskólum í Kanada og Bandaríkjunum, m.a. McGill-háskóla, Michigan-háskóla, Princeton og New York-háskóla.
Carson hefur áður hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir ljóð, margvísleg ritverk og þýðingar á forngrískum bókmenntum, m.a. Griffin ljóðlistarverðlaunin í tvígang. Einnig hlaut hún verðlaun Vigdísar Finnbogadóttur árið 2023 fyrir framlag sitt til tungumála og menningar.
Í umsögn Nóbelsnefndarinnar segir að Anne Carson hljóti verðlaunin fyrir, "djörf og frumleg verk sem hafi skapað ný bókmenntaform fyrir samtímann í leikandi samtali við hina klassísku hefð."
Anne Carson á heimili á Íslandi og hlaut árið 2022 íslenskan ríkisborgararétt. Hún hefur verið virk í íslensku listalífi og átt í samstarfi við hljómsveitina Sigurrós, myndlistarmanninn Ragnar Kjartansson og gefið út bækur hjá íslenska bókaforlaginu Tunglinu. Einnig hefur hún kennt skapandi skrif við Háskóla Íslands.
Nóbelsverðlaun í bókmenntum hafa verið veitt í 119 skipti frá 1901 til 2026. 123 einstaklingar hafa hlotið verðlaunin, þar af 104 karlar og 19 konur. Nóbelsverðlaun í bókmenntum 2026 verða afhent við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi þann 10. desember næstkomandi.
Við óskum Anne Carson til hamingju með Nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2026!
Mynd af Anne Carson fyrir Nóbelsverðlaunanefndina: Ill. Niklas Elmehed © Nobel Prize Outreach.
Hér fyrir neðan má finna verk sem Borgarbókasafnið og Rafbókasafnið eiga eftir Anne Carson. Einnig má á listanum finna verk á íslensku þar sem finna má m.a. ljóð, texta og viðtöl við Anne Carson.