Elskar þú dönsku blöðin?

Elskar þú dönsku blöðin?
Það er fátt betra en að “hygge sig” með stafla af dönsku blöðunum og kaffi og kanilsnúð á kantinum. Se og Hör, Billedbladet, Femina, Spis Bedre, Söndag og Psykologi er aðeins brot af því sem í boði er.
Gilt bókasafnskort veitir ókeypis aðgang að Rafbókasafninu, sneisafullu af tímaritum um allt milli himins og jarðar.
Hægt að lesa blöðin í vafra eða með því að hlaða niður Libby appinu í snjalltækið þitt.
Fleigðu þér í stólinn góða og kíktu á úrvalið með því að smella á hlekkinn.
HÉR eru allar upplýsingar um Rafbókasafnið á einum stað.
Nánari upplýsingar um Rafbókasafnið veitir:
Rúnar Logi Ingólfsson Hafberg, verkefnastjóri safnkosts
runar.logi.ingolfsson.hafberg@reykjavik.is